Innlent

Höfuðpaur í stóra fíkniefnamálinu talinn skipuleggja dópsmygl

Einn af höfuðpaurunum í stóra fíkniefnamálinu svokallaða frá árinu 1999 var búsettur í Brasilíu í mörg ár og er grunaður um að eiga aðild að skipulögðu dópsmygli frá Brasilíu til Íslands. Mörg íslensk burðardýr hafa verið tekin í landinu undanfarin ár.

Í fréttum okkur í vikunni sögðum við frá því að það væri ekkert einsdæmi að Íslendingar reyndu kókaínsmygl frá Brasilíu til Íslands. Leiðin sem Ragnar Erling Hermannson ætlaði með kílóin sín frá Brasilíu til Malagá hefur margoft verið farin áður.

Ragnar komst hins vegar ekki langt. Hann var handtekinn á flugvelli borgarinnar Recife í Brasilíu. Athygli vekur að Sverrir Þór Gunnarsson einn höfuðpauranna í stóra fíkniefnamálinu svokallaða hefur verið búsettur í Recife undanfarin ár. Hann fluttist þangað eftir að hafa lokið afplánun á sjö ára fangelsisdómi fyrir aðild að stórfelldu kókaínsmygli.

En þótt Sverrir hafi flutt frá Litla-Hrauni til Brasilíu hefur hann haldið tengslum við Ísland. Hann á til að mynda nokkrar fasteignir í Reykjavík og í einni þeirra gómaði lögreglan hóp af vændiskonum í hitt í fyrra. Vændiskonurnar voru allar frá Brasilíu.

Þá hafa nokkrir af samverkamönnum Sverris úr stóra fíkniefnamálinu haldið uppteknum hætti. Nokkrir þeirra hafa verið handteknir og dæmdir nýlega fyrir tilraun til að smygla miklu magni af kókaíni til landsins. Í einu nýlegu smyglmáli kom til dæmis fram að smyglarinn millifærði tugi milljóna króna til félags í eigu Sverris í Panama. Smyglarinn útskýrði það svo í Héraðsdómi sem greiðslu vegna byggingaframkvæmda í Brasilíu.

Fréttastofan hefur heimildir fyrir því að vegna fyrri tengsla Sverris við bæði og gömul og nýleg kókaínmál hafi lögreglan hann haft hann undir eftirliti í tengslum við þau fíkniefnamál sem komið hafa upp í Brasilíu á undanförnum árum.

Einn heimildarmaður fréttastofu orðaði það sem svo að smyglarar þurfi á einhverjum að halda sem geti komið íslenskum kaupendum og burðardýrum í sambönd við söluaðila kókaíns sem þeir geti treyst. Lögregla þurfi meðal annars að kanna hvort Sverrir hafi gegnt slíku hlutverki.

Sverrir Þór Gunnarsson flutt nýlega frá Brasilíu og borginni Recife til Amsterdam en Amsterdam er einskonar vörutorg Íslendinga sem vilja smygla í hass, spítt og e-tölum til landsins.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×