Viðskipti innlent

Bréf Century Aluminum féllu um 5,62 prósent í dag

Úr álveri Norðuráls á Grundartanga.
Úr álveri Norðuráls á Grundartanga.

Gengi hlutabréfa í Century Aluminum, móðurfélagi Norðuráls, féll um 5,62 prósent í viðskiptum upp á rúmar 140 þúsund krónur í Kauphöllinni í dag. Þetta er mesta fall dagsins. Á eftir fylgdi gengi Marel Food Systems, sem féll um 4,59 prósent. Þá lækkaði gengi bréfa í Össuri um 1,95 prósent og Færeyjabanka um 1,64 prósent.

Gengi bréfa Bakkavarar hækkaði á sama tíma um 0,89 prósent. Það var jafnframt eina hækkun dagsins.

Gamla Úrvalsvísitalan (OMX15) lækkaði 1,58 prósent og stendur hún í 221 stigi.







Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×