Viðskipti innlent

Gengi Eik banka hækkar mest í byrjun dags

Frá skráningu Eik banka.
Frá skráningu Eik banka.

Gengi hlutabréfa í færeyska Eik banka hefur hækkað um 7,23 prósent í Kauphöllinni í dag. Þetta er mesta hækkun dagsins sem einkennist af uppsveiflu.

Á hæla Eika banka fylgir gengi Bakkavarar, sem hefur hækkað um 4,48 prósent, Marel Food Systems, sem hefur hækkað um 1,67 prósent og Össurar, sem hefur hækkað um 0,98 prósent.

Ekkert félag hefur lækkað á sama tíma.

Gamla Úrvalsvísitalan (OMXI15) hefur hækkað um 1,44 prósent og stendur hún í 258 stigum.







Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×