Innlent

Yfirlýsing frá Láru Ómarsdóttur

Lára Ómarsdóttir, fréttamaður á Stöð 2.
Lára Ómarsdóttir, fréttamaður á Stöð 2.

Lára Ómarsdóttir, fréttamaður á Stöð 2 hefur sent frá sér yfirlýsingu. Í beinni útsendingu á Vísi í gær spurði Lára útsendingarstjóra hvort hún ætti að finna einhvern sem væri tilbúinn til að kasta eggi í átt að lögreglunni þegar mótmælið við Rauðavatn stóðu sem hæst í gær. Yfirlýsing Láru er eftirfarandi:

Reykjavík, 24. apríl 2008

 

Vegna ummæla minna sem fyrir mistök heyrðust í beinni útsendingu á vísi.is í gær vil ég taka eftirfarandi fram.

Á orðunum mátti skilja að ég væri reiðubúin til að sviðsetja atburði fyrir myndavélar Stöðvar 2. Það dytti mér aldrei í hug að gera enda brot á grundvallarreglum blaðamennsku.

Þetta var sagt í fullkomnum hálfkæringi og einungis ætlað eyrum samstarfsmanns. Það dytti engum minna samstarfsmanna í hug að taka orð af þessu tagi bókstaflega en alþekkt er að á milli okkar fjúki ýmislegt gráglettið. Stundum er það til spennulosunar á álagsstund.

Mér þykir afar miður að þessi orð skuli hafa farið fyrir eyru almennings og að það hvarfli að einhverjum að draga trúverðuleika minn, eða minna samstarfsmanna, í efa á forsendum þessara mistaka. Það ætti að vera næsta augljóst að þessi ummæli voru ekki sett fram í alvöru og ég ítreka að sviðsetning atburða í fréttatíma er svo alvarlegt brot á meginreglum míns starfs að ég léti mér slíkt aldrei til hugar koma.

Lára Ómarsdóttir

Fréttamaður á Stöð 2

 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×