Lífið

Skjár einn skoðar Ásdísarþátt

Ásdís Rán.
Ásdís Rán. MYND/ArnoldStúdio
„Þetta er ekkert sem okkur hefur boðist ennþá, en við höfum hugsað um þetta," segir Kristjana Thors Brynjólfsdóttir, dagskrárstjóri Skjás Eins, aðspurð um það hvort stöðin muni taka til sýninga raunveruleikaþáttinn sem Ásdís Rán vann sér inn þáttökurétt í á dögunum.

Hún segir að ákvörðun um að kaupa sýningarréttinn velti á þáttunum og gæðum þeirra. „Við munum skoða hvernig þættir þetta eru og hvort þeir henti okkar dagskrá," segir Kristjana.

Skjár 1 sýndi á sínum tíma Rock Star Supernova, sem naut fádæma vinsælda, ekki síst vegna þáttöku Íslendingsins Magna.

„Hann fékk mikið áhorf, enda alltaf gaman að fylgjast með Íslendingi í erlendum þáttum,“ segir Kristjana.

Hún segir þeir þættir hafi verið afar vandaðir, og hefðu verið sýndir hvort sem Magni hefði tekið þátt eða ekki.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×