Fótbolti

Uefa bikarinn: Ensku liðin áfram

Yakubu skoraði þrennu gegn Brann í kvöld
Yakubu skoraði þrennu gegn Brann í kvöld Nordic Photos / Getty Images

Ensku liðin Tottenham, Everton og Bolton tryggðu sér öll sæti í 16-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða í kvöld, en með mismiklum glæsibrag.

Bolton tryggði sig áfram í keppninni með því að halda Atletico Madrid 0-0 á útivelli. Bolton vann fyrri leikinn 1-0 á heimavelli. Hvorki Heiðar Helguson (meiddur) né Grétar Rafn voru með Bolton í kvöld, en Grétar er ekki löglegur með enska liðinu í keppninni eftir að hafa leikið með AZ áður.

Tottenham gerði 1-1 jafntefli við Sparta Prag á heimavelli þar sem hinn ungi Jamie O´Hara skoraði mark heimamanna. Tottenham var fjarri því sannfærandi í leiknum með nokkuð breytt lið, en fer áfram eftir 2-1 sigur í fyrri leiknum.

Everton var ekki í neinum vandræðum með Íslendingalið Brann frá Noregi og vann 6-1 stórsigur á heimavelli þar sem Yakubu skoraði m.a. þrennu fyrir þá bláklæddu. Andy Johnson skoraði tvö mörk og Mikel Arteta eitt. Ólafur Örn Bjarnason og Kristján Örn Sigurðsson voru á sínum stað í byrjunarliði Brann og Gylfi Einarsson var á bekknum en kom ekki við sögu.

Helsingborg tapaði heima fyrir PSV frá Hollandi þar em Ólafur Ingi Skúlason lék með sænska liðinu.

Öll úrslit kvöldsins - 32 liða úrslitin (úrslit í kvöld - samanlögð úrslit):

Bayer Leverkusen - Galatasaray 5-1 (5-1)

Spartak Moskva - Marseille 2-0 (2-3)

Panathinaikos - Rangers 1-1 (1-1)

Hamburger SV - Zürich 0-0 (3-1)

Bayern München - Aberdeen 5-1 (7-3)

Getafe - AEK Aþena 3-0 (4-1)

Bordeaux - Anderlecht 1-1 (2-3)

Villarreal - Zenit St.Pétursborg 2-1 (2-2)

Fiorentina - Rosenborg 2-1 (3-1)

Basel - Sporting Lissabon 0-3 (0-5)

Nürnberg - Benfica 2-2 (2-3)

Leik Braga og Werder Bremen er ólokið.

Hér má sjá hvaða lið mætast í 16-liða úrslitum keppninnar:

Anderlecht - Bayern München

Rangers - Werder Bremen eða Braga

Bolton - Sporting Lissabon

Bayer Leverkusen - Hamburger SV

Getafe - Benfica

Fiorentina - Everton

Tottenham - PSV

Marseille - Zenit St.Pétursborg




Fleiri fréttir

Sjá meira


×