Skoðun

Enn rembist Framsókn

Einar Kristinn Guðfinnsson skrifar
Þrátt fyrir að Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, rembist eins og mest hann má í grein í Fréttablaðinu í gær, getur hann ekki dregið athygli frá því sem ég vatkti máls á daginn í áður í grein í sama blaði. Framsóknarflokkurinn er afskaplega einn og einmana í gagnrýni á tímabundna ráðningu Tryggva Þórs Herbertssonar í starf efnahagsráðgjafa í forsætisráðuneytið.

Gagnrýni Framsóknar er eitt dæmið um þann farveg sem forysta flokksins hefur kosið sér. Flokkurinn heyr nú kapp við VG um neikvæðni og er nú orðinn alltaf-á-móti-flokkur eins og ég nefndi í fyrradag. Öðruvísi mér áður brá, svo ég segi það enn.

Ég vakti líka athygli á því að gagnrýni forystumanna Framsóknar í þessu tiltekna máli hitti fyrir þann foringja flokksins sem maður bjóst síst við. Steingrím Hermannsson. Einfaldlega vegna þess að á sama tíma og hann var á tímamótum eðlilega hylltur af flokki sínum, er ómögulegt að sjá annað en málflutningur forystumanna Framsóknar nú, gæti átt við sams konar ákvarðanir þessa fyrrum formanns Framsóknarflokksins

Þetta var ofureinfaldlega það sem sagði í grein minni.

Það er skiljanlegt að Guðni sneiði hjá þessu. Og er þetta þó í sjálfu sér ekki stórt mál, þó ekki hafi ég í þetta sinn getað stillt mig um að benda á þessa undarlegu þversögn, með grein í þessu blaði. Þessa tvíhyggju og þar með á mótsagnirnar í málflutningi forystumanna Framsóknarflokksins núna var ástæðulaust að láta liggja á milli hluta..

En kjarni málsins er þá þessi. Almennt er því vel tekið að ráðinn sé til verka snjall og virtur hagfræðingur á tímum þegar þörf er á því að taka vel á málum, rétt eins og ríkisstjórnin hefur unnið að. Þótt Framsókn slái sinn falska tón í því máli þá hefur enginn áhyggjur af því. Þeir um það og það varðar mig að minnsta kosti litlu þótt þeir verði sér til skammar. Það hljóta Framsóknarmenn þá að eiga við sig sjálfa í öllu sínu basli.

Ríkisstjórnin hefur unnið að margs konar efnahagsaðgerðum, eins og kunnugt er. Það breytir því hins vegar ekki, að ástandið sem við er að glíma, er alvarlegt og af margvíslegum rótum runnið. Einfaldar töfralausnir fyrirfinnast því ekki þó sumir kjósi að láta svo. Verkefnið verður því viðvarandi á næstunni. Þar þarf bæði að taka á, á sviði ríkisfjármála, peningamála, við eflingu fjármálastöðugleika og síðast en ekki síst eflingu atvinnulífsins, einkanlega á sviði gjaldeyrissköpunar, til þess að styrkja forsendur hagkerfisins. Það er verkefnið sem ríkisstjórnin gerir sér grein fyrir og vinnur að, algjörlega óháð sífrinu úr herbúðum Framsóknar.

Höfundur er sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.








Skoðun

Sjá meira


×