Fastir pennar

Rugl í Reykjavík

Jón Kaldal skrifar

Í gær var myndaður þriðji borgarstjórnarmeirihlutinn í Reykjavík á þeim tuttugu mánuðum sem eru liðnir frá því að kosið var til borgarstjórnar. Nýjar kosningar væru vissulega fýsilegur kostur í þessari dæmalausu stöðu, ef ekki væri óheimilt að ganga til kosninga fyrr en að loknu kjörtímabilinu. Borgarbúar sitja því uppi með kjörna fulltrúa sína fram til vors árið 2010 þegar næst verður kosið. Full ástæða er til að ætla að fram undan séu erfiðir tuttugu og átta mánuðir.

Þegar þetta er skrifað er ekki gott að sjá um hvað nýi meirihlutinn er stofnaður. Vissulega liggur fyrir málefnasamningur, en þar eru efst á blaði atriði sem ganga þvert á stefnu Sjálfstæðisflokksins. Allra efst er að ekki verði tekin ákvörðun um flutning Reykjavíkurflugvallar á kjörtímabilinu. Aðeins eru nokkrar vikur liðnar frá því að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti sjálfstæðimanna í borgarstjórn, lýsti því afdráttarlaust yfir að það væri skoðun borgarstjórnarflokksins að flugvöllurinn ætti að fara úr Vatnsmýrinni.

Númer tvö á listanum er yfirlýsing um að leitað verði leiða til að varðveita 19. aldar götumynd Laugavegarins og miðborgarinnar eins og kostur er. Þetta þýðir á mannamáli að slegnar verða af hugmyndir um að gömul hús víki fyrir nýjum við Laugaveg. Margsinnis hefur komið fram að húsafriðun er meðal helstu hjartans mála næsta borgarstjóra, Ólafs F. Magnús­sonar. Og í þeim efnum hefur líka komið skýrt fram að hann vill engar málamiðlanir.

Hefur Ólafur meðal annars barist hart fyrir friðun húsanna númer 4 og 6 við Laugaveg, sömu húsa og sjálfstæðismenn voru samstíga um að ekki væri ástæða til að varðveita þegar þeir sátu síðast í meirihlutanum.

Í þessu samhengi er athyglisvert að rifja upp tólf daga gamla skoðanakönnun Fréttablaðsins um afstöðu borgarbúa til friðunar Laugavegar 4 og 6. Þar kom fram að minnstur vilji til að friða var einmitt meðal stuðningsfólks Sjálfstæðisflokksins og Frjálslynda flokksins, fjórtán prósent í fyrra tilfellinu og átján því síðara.

Ekki er enn séð fyrir endann á átökunum um Laugaveg 4 og 6, en ekki verður síður spennandi að sjá hver verða afdrif áætlana um uppbyggingu á þremur mun stærri reitum við Laugaveg. Það verður dýrt ævintýri ef borgin ætlar að leysa til sín allar þær eignir sem verktakar hafa fest kaup á í miðborginni.

Eftir þann vandræðagang sem þjóðin hefur orðið vitni að í stjórn höfuðborgarinnar, fyrst í haust og svo aftur nú, þegar innan við hundrað daga gamall meirihluti féll, er full ástæða til að staldra við og velta fyrir sér um hvað þátttaka í stjórnmálum snýst. Hellir fólk sér út í stjórnmálin til að vinna að sannfæringu sinni, eða til að komast á valdastóla, sama hvað það kostar? Það er ekki bölsýni að spá að borgarbúar muni fá fleiri tilefni til að velta þeirri spurningu fyrir sér áður en kjördagur vorið 2010 rennur upp.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×