Innlent

„Settur saksóknari situr í forinni“

Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, í héraðsdómi á fyrri stigum Baugsmálsins ásamt lögmanni sínum, Gesti Jónssyni.
Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, í héraðsdómi á fyrri stigum Baugsmálsins ásamt lögmanni sínum, Gesti Jónssyni. MYND/Pjetur

„Þetta er mjög ánægjuleg niðurstaða og í samræmi við það sem ég vissi í hjarta mínu að myndi gerast. Í sjálfu sér er ekki mikið meira að segja á þessari stundu annað en það, að núna eru komnar fram lyktir í því máli sem þeir félagar Haraldur Johannessen og Jón H.B. Snorrason fóru af stað með, þegar þeir réðust inn í Baug 28. ágúst árið 2002," segir Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, í yfirlýsingu eftir að Hæstiréttur sýknaði hann og þrjá aðra tengda Baugi af sex ákæruliðum sem eftir voru af upprunalega Baugsmálinu.

„Fyrst henti Hæstiréttur 32 ákæruliðum frá og nú hefur verið sýknað í þeim átta liðum sem eftir stóðu. Sérstakur saksóknari, Sigurður Tómas Magnússon, var skipaður í málið og í stað þess að meta það sjálfstætt hélt hann þessari vitleysu áfram. Hann flutti það sem eftir var af ákærunni í héraði og fyrir Hæstarétti.

Við flutning málsins í Hæstarrétti í síðustu viku viðhafði hann mjög ósmekkleg og ómakleg ummæli um mig og líkti mér við fjósamann sem stæli mjólkinni úr kúnum sem honum væri treyst fyrir. Sýknudómur Hæstaréttar í dag leiðir á hinn bóginn í ljós að það er hann sjálfur, Sigurður Tómas, sem er hinn eiginlegi fjósamaður í málinu. Hann situr í forinni sem þeir Haraldur Jóhannessen og Jón H.B. Snorrason skildu eftir sig þegar þeir hrökkluðust frá málinu," segir Jón Ásgeir enn fremur í yfirlýsingu sinni.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×