Tónlist

TOTO í Laugardalshöll

Aðstandendur B2C Company
Aðstandendur B2C Company

Hljómsveitin TOTO mun spila í Laugardalshöll 10. júlí næstkomandi.

Það er mikill heiður að fá þessa snillinga hingað heim enda frábær 30 ára ferill að baki, yfir 25 milljónir plötur hafa selst sem innhalda t.d. lög eins og: Hold the line, Rosanna, Africa , Georgy Porgy & mörg fl. Þess má geta að meðlimir Toto hafa verið einnig verið afar vinsælir session spilarar í gegnum tíðina & leikið undir hjá mörgum listamönnum frá USA.

Gríðalegur áhugi hefur myndast á komu TOTO til landsins og tölvupóstar hafa borist í stríðum straumi inn til www.2bc.is þar sem fólk lýsir ánægju sinni með komu TOTO til Íslands.

Nú þegar er orðið uppselt á marga tónleika þeirra í Evrópu í þessum tónleikatúr og greinilegt að sveitinn er í gríðalega góðu formi um þessar mundir. Það er því ekki úr vegi að vera klár í fyrramálið og tryggja sér miða á http://www.midi.is í tíma, ef fólk ætlar ekki að missa af þessum stórbrotna tónlistarviðburð. Einnig má kaupa miða í verslunum BT.

Hljómsveitina Toto skipa:

Steve Lukather - Gítar / Söngur

Mike Porcaro - Bassi

Simon Pillips - Trommur

Bobby Kimball - Söngur

Greg Phillinganes - Píano / Söngur (hefur leikið t.d. með Stevie Wonder, Michael Jackson, Eric Clapton) (fékk Grammy útnefningu í dögunum)

www.toto99.com Það er Útgáfu og viðburðafyrirtækið 2B Company www.2bc.is sem stendur fyrir komu stórsveitarinnar Toto til Íslands.

Þess má geta að 2BC stóðu einnig fyrir komu Extreme Team til landsins í nóvember í fyrra og var gerður gríðalega góður rómur af.

Heimasíða 2B Company: http://www.2bc.is

 

 










Fleiri fréttir

Sjá meira


×