Körfubolti

KR og Njarðvík á toppnum

KR og Njarðvík sitja á toppi úrvalsdeildar karla í körfubolta eftir leiki kvöldsins. KR-ingar unnu góðan sigur á Snæfelli í Stykkishólmi 74-71, Njarðvík lagði ÍR syðra 100-85, Tindastóll lagði Hauka 79-75 og Hamar/Selfoss lagði granna sína í Þór 80-68 í Hveragerði.

KR og Njarðvík hafa 20 stig á toppi deildarinnar og Snæfell hefur 18 í þriðja sætinu, en þessi lið hafa spilað 12 leiki. Skallagrímur er í fjórða sætinu með 16 stig eftir 11 leiki og Keflavík hefur 14 stig í fimmta sætinu eftir 11 leiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×