Fastir pennar

Óháður útrásarpottur Illuga

Jón Kaldal skrifar

Illugi Gunnarsson hefur vakið athygli fyrir prúðmennsku og hófsaman málflutning eftir að hann steig út úr skugga Davíðs Oddssonar, sem hann var til aðstoðar um árabil. Prúðmennskan var hins vegar víðs fjarri í svargrein Illuga í gær við leiðara Fréttablaðsins frá því deginum þar á undan.

Það sem raskaði svo óþyrmilega ró Illuga var þó ekki annað en tiltölulega sakleysislegur samanburður á orðum hans í umræðu um íslensku orkufyrirtækin frá því í júlí annars vegar og svo nú í október hins vegar.

Það getur vitaskuld verið erfitt að horfast í augu við það þegar eigin orð fara illa saman og menn verða sjaldan þakklátir þeim sem á það benda. Það er því ekki ástæða til að erfa kaldar kveðjur Illuga.

Hitt er mun forvitnilegra að Illugi virðist vera kominn í ágreining við stefnu eigin flokks, sem hann samkvæmt orðanna hljóðan virtist þó vera sammála í júlí. Þá vildi Illugi „leiða saman kapítalistana, viðskiptamennina og orkufyrirtækin" því þá gæti orðið til „pottur sem knýr áfram útrásina". Þetta fer fyllilega saman við stefnu Sjálfstæðisflokksins í tengslum við útrásarverkefni orkufyrirtækjanna sem Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra lýsti í Fréttablaðinu á þennan hátt fyrir viku: „Í landsfundarályktun frá því í apríl segir um eignarhald og nýtingu náttúruauðlinda að fagnað sé aðkomu einkaaðila að útrás orkufyrirtækjanna. Tímabært sé að leysa úr læðingi krafta einkaframtaksins svo að íslensk sérþekking og hugvit fái notið sín til fulls."

Það er merkilegt en tilvitnuð orð Illuga frá því í sumar hljóma nánast eins og verklýsingin á bakvið samruna útrásararms Orkuveitunnar og Geysis Green Energy undir merkjum REI í haust. Þar er einmitt orðinn til „pottur" sem getur knúið útrásina áfram. Nema hvað nú vill Illugi ekki að Orkuveitan eigi í REI. Hann vill ekki lengur „leiða saman" kapítalistana og orkufyrirtækin í útrásarverkefnunum, heldur afhenda viðskiptamönnunum verkefnin, svo þeir geti sinnt þeim „óháð hinu opinbera".

Í sumar talaði Illugi sem sagt mjög í takt við landsfundarályktun Sjálfstæðisflokksins um „aðkomu einkaaðila að útrás orkufyrirtækjanna" en nú vill hann að útrásin sé „óháð hinu opinbera". Hvað breyttist?

Höfundur er ritstjóri Fréttablaðsins



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×