Bakþankar

Biljónsdagbók 20.5

OMXI15 var 7.981,15 á fimmtudagsmorgun, þegar ég pantaði fjórar heilsíður í blöðunum, og Dow Jones stóð í 13.468,03 þegar Geir og Imba Sól opinberuðu leynilega trúlofun sína og ég varð að afpanta þessar auglýsingar. Ég ætlaði að skora á Sjálfstæðisflokk og Framsókn að halda áfram að byggja upp gott þjóðfélag fyrir skapandi kapítal. Ég var of seinn. Stjórnarslitin eru disaster! Ég sem hélt að Geir og Grani væru að spúna í góðum gír í stjórnarráðinu.

Mér leið eins og Steingrími útundan. Við Baddi fengum lánaða þotuna hjá Jóa og reyndum að jafna okkur með exklúsivv eskort og mass as á lúxushóteli í London. Við jöfnuðum okkur ekki neitt. Þegar við komum heim í gær vorum við í framan eins og Steingrímur, gráir og stífir eins og hafragrautur sem einhver hefur gleymt í ísskápnum. Það eru miljarðar í húfi! Skilja menn það ekki?! Fólk eins og við Baddi getur flogið út á einkaþotunum með alla sína peninga og aldrei sést meir.

Ekki þannig að stjórnmálamenn ráði einhverju eftir að við í grúppum og bönkum og gömlum sambandsklíkum erum búnir að fá það sem við vildum fá hjá íhaldinu og framsókn. Hún er bara eitthvað svo mikið dressman þessi tilfinning að hafa hvunndagslega krata með ódýr bindi og dinglandi lokka í niðurdregnum eyrnasneplum að þvælast fyrir uppbyggingu og útrás. Svo á eftir að einkavæða virkjanirnar. Nú veit enginn hvort við Hámi fáum tækifæri til að nota Sjálfsmínbanka og Energroup til kaupa íslenska vatnsorku á botnprís.

Ég hafði mikið fyrir auglýsingunni sem aldrei birtist. Það átti að vera stór litmynd og standa undir í fyrirsögn: „Biljón hvetur B og D til að starfa áfram saman í ríkisstjórn." Ég hafði fyrst verið að hugsa um að nota mynd af íslensku landslagi - frá Þingvöllum, af Herðubreið eða af Guðna Ág. Svo datt mér í hug að væri sterkara að hafa mannsmynd, t.d. af Jóni „eigi skal víkja" Sigurðssyni (ekki af Jóni „ekkert stopp", núna Jóni „stopp"). Loks féllst ég það með Mallí að væri sterkast að nota mynd af sjálfum mér.

Auglýsingar með myndum af fólki, sem almenningur treystir, eins og til dæmis Lalla Jóns, eru miklu áhrifaríkari. Ég er viss um að sterk skilaboð frá mér á fjórum heilsíðum hefðu knúið menn til að halda áfram ríkisstjórnarsamstarfinu. Og það hefði ekki staðið á Sjálfsmínbanka að liðka fyrir uppbyggingunni. Fyrir mér hefðu þeir jafnvel mátt skipa hvaða djakkass sem er í embætti ríkissaksóknara. En ég var of seinn að auglýsa. Þetta er búið. Bakherbergin eru auð. Í bili.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×