Sport

Mike Tyson er dópisti

Mike Tyson hefur viðurkennt að eiga við fíkniefnavanda að stríða.
Mike Tyson hefur viðurkennt að eiga við fíkniefnavanda að stríða. MYND/Getty

Hnefaleikakappinn Mike Tyson hefur viðurkennd að hann eigi við fíkniefnavanda að stríða eftir að lögreglu menn í Pheonix fundu kókaín í bifreið hans fyrir helgi. Tyson var handtekinn en þó ekki fyrir ölvunarakstur, eins og fyrst var greint frá.

“Hann viðurkenndi fyrir okkur að hann notaði eiturlyf, að hann sé háður þeim og eigi þannig við vandamál að stríða. Tyson viðurkenndi að hafa átt kókaínið sem fannst og sagðist nota slík efni alltaf þegar hann kæmist höndum um þau,” sagði í skýrslu frá lögreglunni í Pheonix þegar mál Tyson var leitt fyrir rétt í gær.

Tyson var sleppt úr haldi án þess að þurfa greiða tryggingu. Hann á von á fjársekt vegna athæfisins og mun líklega verða krafist að hann fari í meðferð vegna fíknefnavanda síns.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×