Körfubolti

Snæfell vann Keflavík

Snæfell og Njarðvík komust í dag upp að hlið KR á topp Iceland Express-deildar karla í körfubolta með því að sigra í sínum leikjum í dag. Snæfell hafði betur í stórslagnum gegn Keflavík, 80-67, en Njarðvík marði sigur gegn Þór Þ. á heimavelli sínum, 105-100.

KR, Njarðvík og Snæfell hafa öll 18 stig, Skallagrímur er í fjórða sæti með 16 stig en Keflavík er með 14 sig í fimmta sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×