Körfubolti

KR vann en Skallagrímur tapaði

KR vann mjög mikilvægan útisigur á Grindavík í Iceland Express-deild karla í körfubolta í kvöld. KR skoraði 89 stig gegn 78 stigum heimamanna og náði með sigrinum tveggja stiga forystu á toppi deildarinnar. Tveir aðrir leikir fóru fram í kvöld.

Í Hveragerði sigraði sameiginlegt lið Hamars/Selfoss lið Hauka úr Hafnarfirði, 99-86, og í Breiðholtinu lá fyrrum topplið Skallagríms gegn heimamönnum í ÍR, 95-82. Skallagrímur er þó áfram í öðru sæti deildarinnar með 16 stig, tveimur færra en KR sem er eitt á toppnum eftir leiki kvöldsins.

ÍR er komið upp í sjöunda sæti deildarinnar eftir gott gengi að undanförnu og er með átta stig, rétt eins og Hamar/Selfoss. Grindavík er í sjötta sæti með 14 stig en Haukar eru ennþá í næstneðsta sæti með aðeins fjögur stig.

Umferðinni lýkur á morgun með tveimur leikjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×