Golf

Harrington hafði betur í bráðabana

Tiger Woods var heiðursemin uppmálum við Harrington eftir mótið í dag og klæddi hann sjálfur í jakkan sem sigurvegari Dunlop-Pheonix mótsins fær að launum.
Tiger Woods var heiðursemin uppmálum við Harrington eftir mótið í dag og klæddi hann sjálfur í jakkan sem sigurvegari Dunlop-Pheonix mótsins fær að launum. Getty Images

Frábær endasprettur Írans Padraig Harrington tryggði honum frækinn sigur á Dunlop Pheonix mótinu sem lauk í Japan í morgun. Harrington sigraði Tiger Woods í bráðabana eftir að sá síðarnefndi hafði farið illa að ráði sínum á lokasprettinum.

Woods hafði þriggja högga forystu á Harrington þegar sex holur voru eftir en skolli á 16. holu varð til þess að sá írski komst aftur í baráttuna. Báðir kylfingarnir léku 18. holuna á einu höggi undir pari og hringinn samtals á 67 höggum og þurfti því að grípa til bráðabana til að ná fram úrslitum.

Bráðabaninn fór fram á 18. holu vallarins og náðu báðir kylfingarnir fugli í fyrsta sinn sem holan var leikin. En í annari umferð fékk Harrington fugl á meðan Woods náði aðeins pari og úrslitin því ráðin.

"Ég fékk tækifærin til að klára þetta en þetta var ekki minn dagur," sagði Woods vonsvikinn eftir mótið. "Ég var í vandræðum með sveifluna undir það síðasta og sjálfstraustið fór," bætti hann við.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×