Sport

Klitschko rotaði Brock

NordicPhotos/GettyImages

Wladimir Klitschko varði í nótt IBF heimsmeistaratitil sinn í þungavigt þegar hann rotaði Bandaríkjamanninn Calvin Brock í sjöundu lotu bardaga þeirra í Madison Square Garden í New York. Bardaginn var sýndur beint á Sýn.

Klitschko byrjaði frekar rólega í bardaganum, en skarst á auga í fimmtu lotu eftir að höfuð þeirra skullu saman og spýtti í lófana eftir það og vann góðan sigur. Klitschko lýsti eftir bardagann yfir áhuga sínum á því að sameina heimsmeistaratitilinn hjá öllum samböndunum og sagðist myndi berjast við hvern þann mann sem hefði meistarabelti undir höndum.

Klitschko er handhafi IBF beltisins, Nicolay Valuev er meistari hjá WBA, Oleg Maskaev hjá WBC og Shannon Briggs hjá WBO.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×