Golf

Tiger og Furyk rétta úr kútnum fyrir USA

Tiger Woods og Jim Furyk
Tiger Woods og Jim Furyk MYND/AP

Tiger Woods og Jim Furyk sigruðu Padraig Harrington og Paul McGinley í síðasta leiknum á K-vellinum í dag. Með sigrinum löguðu þeir stöðu Bandaríkjamanna í baráttunni um Ryder bikarinn. Staðan fyrir lokadaginn á morgun er 10-6 fyrir Evrópumennina en þeir þurfa 14 sigra til að halda bikarnum. Draumahögg Paul Casey bar þó hæst á vellinum í dag.

Paul Casey sló holu í höggi í Ryder bikarnum í dag en það er fyrsta draumahöggið í keppninni síðan 1995. Casey og David Howell sigruðu Stewart Cink og Zach Johnson í dag og juku forystu Evrópumanna.

Colin Montgomerie og Lee Westwood skyldu jafnir við Chad Campbell og Vaughn Taylor.

Sergio Garcia, sem virðist vera óstöðvandi, og Luke Donald unnu öruggan sigur á Phil Mickelson og David Toms.

Tiger Woods og Jim Furyk sigruðu Padraig Harrington og Paul McGinley í síðasta leiknum á vellinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×