Sport

Barrera varði titil sinn

Barrera vann góðan sigur á Juarez í nótt
Barrera vann góðan sigur á Juarez í nótt NordicPhotos/GettyImages

Marco Antonio Barrera varði í nótt WBC titil sinn í fjaðurvigt þegar hann vann sigur á Rocky Juarez í Las Vegas í Bandaríkjunum. Bardaginn var sýndur beint á Sýn og hafði Barrera meiri yfirburði í þetta sinn en í fyrri bardaga þeirra, þar sem honum var dæmdur sigur á umdeildan hátt.

Barrera hefur nú unnið 63 bardaga og tapað aðeins 4, en Juarez hefur unnið 25 og tapað þremur. "Það sem ég gerði öðruvísi í kvöld var að berjast eins og meistari í stað þess að fara inn í bardagann eins og áskorandi," sagði Barrera. "Maður verður að vera þolinmóður og nýta reynslu sína í svona bardögum."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×