Innlent

Góðæri hjá útgerðarfélögum

Góðæri ríkir nú hjá útgerðarfélögunum þar sem verðmæti fiskiaflans hefur hækkað mikið á þessu ári á sama tíma og gengi krónunnar hefur veikst.

Ekki er útlit fyrir að fiskverð lækki á næstunni. Meðalverð á mörkuðum hefur hækkað að undanförnu um 18 %. Þannig hefur til að mynda verðið á ýsu hækkað um rúm 30 %, á þorski um 12,5 % og á ufsa um tæp 88 %.

Útlitið er bjart fyrir útgerðarmenn því í júní mánuði var sett met á íslensku fiskimörkuðunum en þá fór meðalkílóverð í 148 krónur sem er það hæsta sem fengist hefur í þeim mánuði frá stofnun fiskmarkaða.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×