Erlent

Hermenn skutu ólétta konu til bana

Bandarískir hermenn skutu ólétta konu til bana í Bagdad í gær. Konan var á leið á fæðingardeildina þegar atvikið varð. Ekki hafa fengist upplýsingar um hvers vegna þeir skutu konuna en fréttaskýrendur í Írak segja að almennir borgarar sem banað hefur verið af bandarískum hermönnum síðan innrás Bandaríkjamanna hófst fyrir þremur árum séu mörg hundruð.

Sífellt fjölgar sögum um ódæðisverk bandarískra hermanna í Írak og almenningur trúir þeim í sífellt meira mæli.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×