Innlent

Atvinnumál og velferðarmál í öndvegi

Frá Höfn í Hornafirði.
Frá Höfn í Hornafirði. Mynd/Vísir

Samfylkingin býður fram í fyrsta sinn á Hornafirði í komandi sveitastjórnakosningnum. Bæði Framóknarmenn og Sjálfstæðismenn spá því að Samfylkingin muni ná tveimur mönnum inn í sveitastjórn.

Atvinnumál, velferðarmál og skipulags- og umhverfismál eru helstu stefnumál flokkanna þriggja. Heimamenn lýta á stofnun Vatnajökulsþjóðgarð sem góðs vaxtabroddar á sviði ferðaþjónustu og atvinnu en sjávarútvegur og ferðaþjónusta eru helstu atvinnugreinar í sýslunni. Samfylkingin leggur höfuðáherslur á velferðarmálin og vill auka samstarf við íbúa sveitafélagsins. Árni Rúnar Þorvaldsson, oddviti Samfylkingar, segir að flokkurinn setji velferðarmálin efst á forgangslista. Samfylkingarmenn og konur vilja auk þess hafa bæjarbúa enn frekar með í ráðum hvað framtíð sveitafélagsins varðar.

Framsóknarmenn þurfa varla að óttast stöðu sína á Hornafirði, enda eitt aðalvígi Framsóknarmannsins Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra. Líkt og samfylkingarmenn leggja framsóknarmenn höfuðáherslur á velferðarmál, og skipulags- og umhverfismál að auki. Framsóknarmenn og sjálfstæðismenn mynda meirihluta í bæjarstjórn með þrjá menn hvor um sig og minnihluti er skipaður einum manni, frá Kríunni, framboði óháðra og frjálslyndra. Krían býður ekki fram í kosningunum í vor en Reynir Arnarson, oddviti Framsóknarflokks, spáir því að Samfylkingarmenn muni ná tveimur mönnum inn, og hafa þar með mann af Sjálfstæðismönnum. Reynir segir ekki gott að spá fyrir um kosningaúrslit en hann segist þó öruggur með stöðu Framsóknarflokksins. Reynir telur þó að Samfylkingin muni ná tveimur mönnum inn og það á kostnað Sjálfstæðisflokksins.

Sjálfstæðismenn setja atvinnumálin efst á stefnuskrá sína og vilja sjá aukna fjölbreytni í atvinnumálum. Halldóra Jónsdóttir, Oddviti flokksins, segir ákveðna óvissu ríkja um úrslit kosninganna, þar sem engar niðurstöður skoðanakannana liggi fyrir. Hún segist þó fullviss um að Sjálfstæðismenn haldi fylgi sínu. Sjálf segist hún ekki hafa í huga að verða bæjarstjóri þó sjálfstæðismenn nái meirihluta í bæjarstjórn. Halldóra segir að þeir flokkar sem myndi meirihluta muni líklegast sammælast um bæjarstjóra og ráða hann sérstaklega til starfsins, sá háttur hafi verið á síðstliðin ár.

Alls voru rúmlega tvö þúsund íbúar búsettir í sveitafélaginu Hornafirði í lok ársins 2005, samkvæmt mannfjöldatölum Hagstofunnar. Sveitafélagið telur Öræfi, Suðursveit, Mýrar, Nes, Höfn og Lón.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×