Sport

Schumacher íhugar að hætta

Michael Schumacher hefur ekki áhuga á að keppa ef honum þykir lið hans ekki samkeppnishæft
Michael Schumacher hefur ekki áhuga á að keppa ef honum þykir lið hans ekki samkeppnishæft NordicPhotos/GettyImages

Fyrrum heimsmeistarinn Michael Schumacher hefur gefið það út að hann sé að íhuga að hætta eftir komandi tímabil í Formúlu 1. Hinn sjöfaldi heimsmeistari vill þó ganga úr skugga um hvort Ferrari-lið hans hefur burði til að komast aftur í fremstu röð áður en hann tekur endanlega ákvörðun.

"Ef við ætlum okkur að ná lengra, verðum við að bæta við okkur starfsfólki og ég held að ég muni ekki hafa sérstakan áhuga á að keppa mikið lengur ef við verðum ekki með í baráttunni um titilinn. Þú getur ekki staðið í stað ef þú ætlar að ná árangri í Formúlu 1 og því vil ég sjá hvert liðið stefnir áður en ég tek ákvörðun um framtíð mína," sagði Schumacher í samtali við þýska blaðið Bild. "Eftir frábæran árangur síðustu ár, var það að mörgu leiti kæruleysi sem varð þess valdandi að tímabilið í fyrra var svona hörmulegt," sagði Þjóðverjinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×