Lífið

Navarro skilinn

Navarro og Electra mættu saman á frumsýningu í apríl.
Navarro og Electra mættu saman á frumsýningu í apríl. Vísir/Getty
Dave Navarro, rokkarinn og kynnirinn í Rock Star: Supernova er að skilja við eiginkonu sína Carmen Electra. Fyrirsætan og leikkonan gerði garðinn frægan í Baywatch og í sjónvarpsþættinum "Til death do us part á MTV þar sem hún og Navarro gáfu áhorfendum innsýn í hjónaband sitt.

Parið gifti sig árið 2003 og var athöfnin sýnd í þættinum. Í yfirlýsingu frá hjónaleysunum sagði að þau myndu „skilja í vinsemd.“

Í apríl sagði Electra í samtali við People tímaritið að hjónabandið stæði vel.

„Ég er ekki að segja að þetta sé fullkomið hjónaband eða að við séum fullkomið par, en við höfum það fjári gott.“

Hún bætti því við að ef þau ættu í vandræðum myndi hún ekki ganga með hringinn á sér.

„Ég myndi ekki ganga um og þykjast.“ Carmen Electra var áður gift körfuboltastjörnunni Dennis Rodman en Dave Navarro hefur spilað á gítar með Red Hot Chili Peppers og fleiri hljómsveitum






Fleiri fréttir

Sjá meira


×