Sport

Þórir skoraði tíu mörk fyrir Lubbecke

Fimm leikir voru á dagskrá í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Þórir Ólafsson skoraði tíu mörk fyrir lið sitt Lubbecke þegar það burstaði Delitzsch 40-25. Guðjón Valur Sigurðsson skoraði níu mörk fyrir Gummersbach í sigri liðsins á Minden, Róbert Gunnarsson bætti við þremur mörkum fyriri Gummersbach, en Snorri Steinn Guðjónsson skoraði eitt mark fyrir Minden.

Lemgo vann Wilhelmshavener 34-29. Ásgeir Örn Hallgrímsson skoraði sex mörk fyrir Lemgo, en Gylfi Gylfason var með tvö mörk hjá Wilhelmshavener. Sigfús Sigurðsson skoraði sex mörk fyrir Magdeburg þegar liðið lagði Wetzlar 32-23, en Róbert Sighvatsson skoraði tvö fyrir Wetzlar. Loks gerðu Pfullingen og Melsungen jafntefli 35-35.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×