Sport

Einar Hólmgeirsson í stuði

Nokkrir leikir fóru fram í þýska handboltanum í dag. Einar Hólmgeirsson skoraði 9 mörk fyrir Grosswallstadt og Alexander Petersson 7 þegar liðið lagði Lemgo 33-29. Ásgeir Örn Hallgrímsson skoraði 2 mörk fyrir Lemgo. Magdeburg sigraði Minden 31-27, þar sem Sigfús Sigurðsson skoraði 3 mörk og Arnór Atlason 1, en Snorri Steinn Guðjónsson gat ekki leikið með Minden vegna meiðsla.

Dusseldorf sigraði Pfullingen 28-26, Wilhelmshaven lagð Melsungen 27-24, Nordhorn sigraði Göppingen 28-27 og Nettelstedt og Östringen gerðu jafntefli 38-38.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×