Sport

Ísland burstaði Noreg í Eyjum

Íslenska karlalandsliðið í handknattleik vann auðveldan sigur á Norðmönnum 32-23 í Vestmannaeyjum í kvöld, eftir að hafa verið yfir 15-11 í hálfleik. Þetta var fyrsti leikur liðanna af þremur, en þau mætast að Varmá á morgun klukkan 16:15 og á sama tíma á sunnudag í Kaplakrika.

Alexander Petersson skoraði 7 mörk fyrir íslenska liðið í dag og Guðjón Valur Sigurðsson og Róbert Gunnarsson skoruðu 6 mörk hvor.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×