Sport

Glæsilegur Evrópusigur í gær, grannaslagur í kvöld

Sigurður Ingimundarson segir sína menn ekki láta leikjaálagið á sig fá og hlakkar til að mæta Njarðvík í kvöld
Sigurður Ingimundarson segir sína menn ekki láta leikjaálagið á sig fá og hlakkar til að mæta Njarðvík í kvöld

Það er nóg að gera hjá karlaliði Keflavíkur í körfuboltanum þessa dagana. Í gærkvöld vann liðið frækinn sigur á BK Riga frá Lettlandi í Evrópukeppninni 121-90 og tryggði sér þar með sæti í 16-liða úrslitum keppninnar. Ekki tekur auðveldara verkefni við í kvöld, þegar Keflvíkingar mæta grönnum sínum í Njarðvík í Powerade bikarnum.

"Það er svosem eðlilegt að fólk hafi verið búið að afskrifa okkur fyrir leikinn gegn Riga í gær, því við höfðum ekki náð okkur á strik í keppninni fram að því, en það sýndi sig í gærkvöldi að það má aldrei vanmeta Keflavík," sagði Sigurður Ingimundarson í léttu spjalli við Vísir.is nú áðan.

"Við vorum búnir að vera að spila eins og búðingar fram að þessum leik í gær, en þá náðu menn loksins að taka sig saman í andlitinu og þá var þetta engin spurning," sagði Sigurður, en liðið mætir Madeira frá Portúgal heima og úti í 16-liða úrslitum keppninnar í desember. "Ég mundi áætla að þetta Madeira lið sé svona í svipuðum styrkleikaflokki og finnska liðið Lappenranta sem við mættum í riðlinum um daginn og því er ljóst að þeir verða fyrirfram áætlaðir sterkari en við," sagði Sigurður.

Í kvöld mæta Keflvíkingar svo grönnum sínum í Njarðvík í undanúrslitum Powerade bikarsins, en þar má eiga von á hörkurimmu eins og venjulega. En er Sigurður ekki hræddur um að hans menn verði dálítið þreyttir í leiknum í kvöld?

"Nei, nei, við værum ekki að fara í þessa keppni ef við héldum að við réðum ekki við það og ég veit að strákarnir geta ekki beðið eftir að mæta Njarðvík. Þetta er bara líf og fjör," sagði Sigurður, en ef Keflvíkingar vinna granna sína í kvöld, bíður þeirra þriðji leikurinn á þremur dögum í úrslitum keppninnar á morgun.

Fyrri undanúrslitaleikur kvöldsins er viðureign Fjölnis og KR klukkan 18:30 í Laugardalshöllinni, en klukkan 20:30 mætast svo Keflavík og Njarðvík. Úrslitaleikurinn er svo í Laugardalshöllinni á morgun klukkan 16:10.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×