Sport

Birgir Leifur 3 höggum frá því að komast áfram

Birgir Leifur Hafþórsson hafnaði í 98.-106. sæti og er úr leik á lokaúrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina í golfi sem lauk á San Roque vellinum á Spáni nú undir kvöldið. Birgir lauk keppni um hádegisbil á samtals 12 yfir pari en aðeins munaði þó þremur höggum frá því að hann kæmist áfram.

Birgir lék hringinn í dag best af öllum fjórum eða á einu höggi undir pari, 73 höggum. Fyrsta hringinn lék hann á 74 höggum, annan á 75 höggum en í gær gekk honum verst þegar hann lék þriðja hringinn á fjórum höggum yfir pari eða 78 höggum. Englendingurinn Tom Whitehouse sigraði á mótinu á 9 höggum undir pari, tveimur höggum á undan næsta manni en enskir kylfingar höfnuðu í þremur efstu sætunum.

Að lokinni keppni í dag var keppendum fækkað niður í 70 og leika þeir tvo hringi. Þeir sem verða í 30 efstu sætunum eftir þessa tvo hringi tryggja sér þátttökurétt á evrópsku mótaröðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×