Sport

Breiðablik fór með sigur af hólmi

Arnar Gunnlaugsson sýndi góða takta með liði Icelandair í Egilshöllinni í dag
Arnar Gunnlaugsson sýndi góða takta með liði Icelandair í Egilshöllinni í dag Mynd/Pjetur Sigurðsson

Lið Breiðabliks vann lið Icelandair í úrslitum á Mastersmótinu í Egilshöll í dag, en mótið var kennt við markaskorarann Ian Rush, fyrrum leikmann Liverpool, en lið hans hafnaði í þriðja sæti á mótinu eftir sigur á Víkingi í leiknum um þriðja sætið.

Margir kunnir kappar léku listir sínar á mótinu og má þar nefna Ian Rush, Jan Mölby, John Wark, Perry Groves, David May og svo íslensku hetjurnar Eyjólf Sverrisson, Guðna Bergsson, Sigurð Jónsson og Ólaf Þórðarson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×