Sport

Jafntefli gegn Dönum

Guðjón Valur Sigurðsson var markahæstur í íslenska liðinu með átta mörk
Guðjón Valur Sigurðsson var markahæstur í íslenska liðinu með átta mörk Mynd/Teitur
Íslenska landsliðið í handknattleik gerði jafntefli við Dani 32-32 á æfingamótinu í Póllandi nú áðan. Leikurinn var jafn og spennandi allan tímann, en íslenska liðið hafði yfir 17-16 í hálfleik. Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 8 mörk fyrir Ísland, en Alexander Petersons kom næstur með 6 mörk. Ólafur Stefánsson, Einar Hólmgeirsson og Róbert Gunnarsson skoruðu allir 4 mörk.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×