Erlent

Fjöldi slasaðra í Lundúnum

Innanríkisráðherra Bretlands, Charles Clarke, sagði í samtali við fjölmiðla fyrir stundu að þó nokkur fjöldi fólks hefði slasast í sprengingunum í Lundúnum í morgun. Talsmaður lögreglunnar vill ekki fullyrða að um hryðjuverkaárás sé að ræða á þessari stundu. Röð sprenginga hefur átt sér stað í neðanjarðarlestakerfi borgarinnar í morgun auk þess sem sprengjur hafa sprungið í a.m.k. þremur strætisvögnum.


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×