Sport

Ferill Tysons á enda

Ferill hnefaleikamannsins Mikes Tysons er á enda eftir að hann var sleginn niður í sjöttu lotu í bardaga við Kevin McBride frá Írlandi í nótt. Tyson, sem er 39 ára, sagðist eftir bardagann vera hættur í hnefaleikum en fyrir nítján árum varð hann yngsti maðurinn til að vinna heimsmeistaratitilinn í þungavigt í hnefaleikum. Á ferli sínum hefur Tyson unnið 50 bardaga, þar af 44 með rothöggi.
Box



Fleiri fréttir

Sjá meira


×