Sport

Box og NBA á Sýn í kvöld

Ricky Hatton og Kosta Tsyu berjast um heimsmeistaratitilinn í veltivigt í boxi í kvöld. Bardaginn verður í beinni á Sýn og hefst útsending klukkan 22. Gríðarleg eftirvænting er fyrir þennan bardaga en Kosta Tsyu þykir einn besti boxari heims og Hatton hefur aldrei tapað í hringnum. Eftir boxið verður sjötta viðureign Miami Heat og Detroit Pistons í úrslitum austurdeildar NBA-körfuboltans sýnd beint. Miami er yfir, 3-2, og getur með sigri tryggt sér farseðilinn í úrslitin gegn San Antonio Spurs. Óvíst er hvort ein aðalstjarna Miami Heat, Dwayne Wade, geti leikið í kvöld en hann meiddist í fimmta leiknum. Leikur verður á heimavelli Miami.
Box



Fleiri fréttir

Sjá meira


×