Sport

Miami 1 - Detroit 1

NordicPhotos/GettyImages
Shaquille O´Neal hringdi í Dwayne Wade um miðja nótt og sagði honum að hengja ekki haus yfir slökum fyrsta leik sínum gegn Detroit. Hvort það var ræða stóra mannsins eða eitthvað annað er ekki gott að segja, en Wade leiddi Miami til sigurs á Detroit í nótt 92-86 og hefur jafnað metin í einvígi liðanna. Wade skoraði 40 stig í leiknum í nótt, þar af 20 í lokaleikhlutanum og reyndist of stór biti fyrir meistarana að þessu sinni, sem nú halda heim til bílaborgarinnar þar sem næstu tveir leikir fara fram. Shaquille O´Neal var spurður hvernig hefði staðið á að hann hafi verið að hringja í Wade svona á nóttinni með það á hættu að vekja fjölskyldu hans. "Ég vildi ganga úr skugga um að hann gleymdi fyrsta leiknum og héldi áfram að vera grimmur og spilaði sinn leik. Ég skyldi vera honum innan handar, sama hvað," sagði O´Neal sem vildi meina að spjótin hefðu beinst að Wade eftir tapið í fyrsta leiknum. Leikur liðanna í gær var jafn lengst af, en það var Wade sem gerði útslagið í lokaleikhlutanum með ótrúlegum tilþrifum. "Þetta hefur einkennt leik hans síðan hann kom inn í deildina. Ef hann á slæman dag, skoðar hann af hverju og aðlagar leik sinn og kemur til baka með breytt plön. Það er eitt af því sem gerir hann að þessum frábæra leikmanni sem hann er," sagði Stan Van Gundy, þjálfari Miami. Atkvæðamestir í liði Detroit:Rip Hamilton 21 stig, Tayshaun Prince 17 stig, Rasheed Wallace 15 stig, Chauncey Billups 14 stig (8 frák, 6 stoðs, 8 tapaðir boltar), Lindsay Hunter 6 stig.Atkvæðamestir hjá Miami:Dwayne Wade 40 stig (8 frák, 6 stoðs), Shaquille O´Neal 17 stig (10 frák), Damon Jones 14 stig (7 frák), Eddie Jones 6 stig (7 frák), Alonzo Mourning 6 stig.
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×