Sport

Cassano ekki til Juventus

Luciano Moggi, forseti ítalska stórliðsins Juventus, sagði í dag að liðið hefði ekki áhuga á að fá ítalska landsliðsmanninn hjá Roma, Antonio Cassano, í sumar. Juventus er eitt þeirra liða sem hefur verði orðað við þennan fyrrum leikmann Bari en Moggi segir leikmanninn ekki passa inní lið Capello. ,,Cassano er vissulega einn af bestu framherjunum en hann mun ekki koma til Juventus af tveimur ástæðum," sagði Moggi. ,,Sú fyrri er sú að ég er sannfærður um að hann mun ekki yfirgefa Roma. Sú síðari er að ég sé hann ekki komast í framlínuna hjá okkur. Mér finnst skynsamlegra að reyna halda okkar bestu leikmönnum."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×