Sport

Corrales féll tvisvar en vann samt

Diego Corrales vann í morgun heimsmeistaratitil WBC-hnefaleikasambandsins í léttvigt þegar hann sigraði Jose Luis Castillo. Þrátt fyrir að hafa verið sleginn tvisvar í gólfið tókst Corrales að vinna sigur. Juan Manuel Marquez sigraði Victor Polo á stigum í baráttu um heimsmeistaratignina í fjaðurvigt WBA og IBF-sambandsins. Joe Calzaghe sigraði Mario Veit í bardaga um titil WBO-sambandsins í léttmillivigt. Calzaghe sló Veit niður í sjöttu lotu og vann þar með 39. bardaga sinn.
Box



Fleiri fréttir

Sjá meira


×