Sport

Hálfleikstölur í Meistaradeildinni

Það er kominn hálfleikur í leikina tvo í Meistaradeild Evrópu sem fram fara í kvöld. Á Anfield er Liverpool 2-0 yfir gegn Juventus. Sami Hyypia kom þeim rauðu yfir á 11. mínútu með góðu skoti eftir hornspyrnu. Luis Garcia tvöfaldaði síðan forystuna með frábæru marki. Anthony Le Tallec sendi þá á Garcia sem tók skotið í fyrstu snertingu, um 25 metra frá markinu. Boltinn fór yfir Buffon í marinu og í netið. Frábært mark. Liverpool hefur verið mun sterkari aðilinn í fyrri hálfleiknum og er forystan mjög verðskulduð. Í Frakklandi er Lyon 1-0 yfir gegn PSV með marki frá Florent Malouda.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×