Innlent

Búið að ákveða kaupendur?

Lúðvík Bergvinsson, þingmaður Samfylkingarinnar, segir þrálátan orðróm í viðskiptalífinu um að búið sé að ákveða fyrirfram hverjir kaupi Landssímann og að fráleit skilyrði til kaupenda virðist heimatilbúin til að koma verðmætum til vildarvina. Hann rifjaði upp sölu Búnaðarbankans á Alþingi í gær og spurði hvort menn myndu nú aftur sjá sambærilega fréttamynd að aflokinni sölu Símans: af fyrrverandi varaformanni Framsóknarflokksins keyra burt með Landssímann í skottinu. Lúðvík tæpti á einkavæðingasögu Búnaðarbankans og sagði ekki að undra þótt það væru grunsemdir og tortryggni í garð ríkisstjórnarinnar í málinu. Hesteyri, fyrirtæki í eigu Skinneyjar-Þinganess og Kaupfélags Skagfirðinga, keypti rúmlega 22 prósenta hlut í Keri 16. ágúst 2002 af Straumi. Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra á rúmlega 2,3 prósenta hlut í Skinney-Þinganes. Ker keypti síðan tæpan 35 prósenta hlut í VÍS af Landsbankanum þann 28. ágúst. Hesteyri er þá leiðandi aðili í Keri. S-hópurinn sýndi síðan áhuga á að kaupa Búnaðarbankannn 10. september. Einkavæðinganefnd hóf viðræður við S-hópinn 4. nóvember. 6. nóvember kemur VÍS inn í S-hópinn en Samskip fara út. 15. nóvember selur Ker Norvik hlut sinn í VÍS og hafði þá hagnast um rúman einn milljarð frá því hluturinn var keyptur af ríkinu. Heysteyri selur svo rúman 22 prósenta hlut sinn í Keri og fær greitt með fjórðungshlut í VÍS. Ætla má að hluturinn hafi verið seldur á 700 milljóna króna yfirverði, miðað við upplýsingar sem Lúðvík Bergvinsson vitnaði til úr Frjálsri verslun í desember árið 2002. Þar kemur fram að félag í eigu Fiskiðjunnar Skagfirðings og Skinneyjar-Þinganess hafi haft frumkvæði og völd í S-hópnum á þessum tíma vegna stöðu sinnar í Keri á meðan viðræður voru í gangi um kaup hópsins á 45,8 prósenta hlut ríkisins í Búnaðarbankanum. 16. nóvember náðist samkomulag við S-hópinn. Hann samanstendur þá af VÍS, Samvinnulífeyrissjóðnum, Eglu, Keri, Samvinnutryggingum - eignarhaldsfélagi og erlendri fjármálastofnun. Lúðvík sagði engar lagareglur gilda um störf einkavæðingarnefndar og samkvæmt opinberum upplýsingum virtist að undarlegir hlutir hafi átt sér stað í tengslum við einkavæðingu Búnaðarbankans. Hann sagði þrálátan orðróm í viðskiptalífinu um að búið sé að ákveða fyrirfram hverjir kaupi Landssímann og að fráleit skilyrði til kaupenda virðist heimatilbúin til að koma verðmætum til vildarvina. Lúðvík spurði því hvort menn myndu nú aftur sjá sambærilega fréttamynd og áður er getið.


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×