Innlent

Heimsókn til Kína í boði þingsins

Halldór Blöndal, forseti Alþingis, mun heimsækja Kína 11.- 18. janúar í boði forseta kínverska þingsins ásamt eiginkonu sinni, Kristrúnu Eymundsdóttur. Með þingforseta í för verða varaforsetarnir Guðmundur Árni Stefánsson og kona hans, Jónína Bjartmarz og eiginmaður hennar, og Sólveig Pétursdóttir ásamt forstöðumanni alþjóðasviðs skrifstofu Alþingis. Sendinefndin mun meðal annars heimsækja Peking, Chengdu og Shanghaí. Rætt verður við forseta og varaforseta kínverska þingsins, fulltrúa ríkisstjórnar og fleiri ráðamenn.


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×