Sport

Atvinnumennska innan fimm ára

Teitur Þórðarson segir að atvinnumennska á íslandi sé á næsta leiti.
Teitur Þórðarson segir að atvinnumennska á íslandi sé á næsta leiti. fréttablaðið//valli

Teitur Þórðarson, þjálfari KR, telur að atvinnumennska verði við lýði í íslenskum fótbolta innan fimm ára og bendir, máli sínu til stuðnings, á að peningarnir í íslenskum fótbolta í dag séu oft á tíðum síst minni en hjá liðum í norsku úrvalsdeildinni.

"Þegar ég var úti í Noregi að þjálfa Brann og Lyn á sínum tíma þá voru þetta ekki atvinnumenn," sagði Teitur við Fréttablaðið í gær. "Atvinnumennskan kemur ekki til Noregs fyrr en 1994 og þá var það mjög algengt að menn væru í hlutastörfum með fótboltanum. Menn æfðu klukkan sex á morgnana og svo aftur seinna um daginn og þannig hefur þetta byggst upp í Noregi og Skandinavíu. Það sama er að gerast hérna núna.

Eftir nokkur ár verða félögin hér orðin atvinnufélög svo þetta breytist allt saman. Þetta er framtíðin á Íslandi. Við héldum á sínum tíma að þetta væri ekki framtíðin í Noregi eða Skandinavíu en þetta hefur gjörbreyst allt saman þarna úti og það er alls staðar atvinnumennska. Eftir allar þær breytingar sem hafa orðið hér á nokkrum árum þá tel ég að þetta gerist innan fimm ára, það er að segja að einhver af þessum liðum hérna á Íslandi verði orðin meira eða minna atvinnulið," segir Teitur.

Eins og Fréttablaðið hefur greint frá að undanförnu fara laun leikmanna á Íslandi síhækkandi og eru dæmi um að menn þéni allt að fimm milljónir á ári fyrir það eitt að spila fótbolta en Teitur segir það mun hærri laun en hjá mörgum leikmönnum í Noregi. "Ég er ekki alveg búinn að átta mig á því en vissulega er verið að borga mjög góð laun á sumum stöðum hérna á Íslandi. Launin í Noregi eru vissulega góð, bestu liðin í Noregi eru að borga mjög vel og sumir leikmenn þar eru að þéna 30 milljónir á ári," segir Teitur og bætir við að sjálfsagt séu margir leikmenn hér á landi sem þéni ekkert minna en kollegar þeirra í Noregi.

"Þó svo að menn séu atvinnumenn eru þeir ekki á neinum gríðarlega háum launum. Það eru stóru liðin sem borga rosalega vel en í öðrum liðum eru menn að hafa kannski þrjár milljónir á ári. Ég get nefnt Ålesund sem dæmi, þeir féllu reyndar úr efstu deildinni í Noregi núna en þar eru margir leikmenn sem eru ekki að þéna þrjár milljónir á ári. Það sama gildir um fleiri lið," segir Teitur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×