Sport

Njarðvík marði Hauka

Njarðvík vann nauman sigur á Haukum, 69-67, í Njarðvík í 1. deild kvenna í körfubolta á miðvikudagskvöldið. Leikurinn var hörkuspennandi en Njarðvíkurstúlkur tryggðu sér sigur með góðum endaspretti. Útlendingarnir tveir, Vera Janjic og Jaime Woudstra, drógu vagninn fyrir Njarðvíkurliðið í leiknum. Vanjic skoraði 26 stig og stal 8 boltum og Woudstra skoraði 21 stig og tók 16 fráköst. Helena Sverrisdóttir skoraði 22 stig og tók 8 fráköst fyrir Hauka, Ebony Shaw skoraði 13 stig og Pálína Gunnlaugsdóttir skoraði 10 stig og tók 8 fráköst.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×