Sport

Erna Rún til ÍS

Erna Rún Magnúsdóttir, 19 ára körfuboltakona úr Grindavík, hefur ákveðið að breyta til og ganga til liðs ÍS í 1. deild kvenna í körfubolta. Erna Rún, sem þrátt fyrir ungan aldur á að baki 86 leiki í efstu deild með Grindavík, hefur ekki fengið mikið að spreyta sig með Grindavíkurliðinu í vetur, bara í 10,8 mínútur að meðaltali í leik, en hún er annar ungi leikmaðurinn sem yfirgefur Grindavíkurliðið því áður hafði jafnaldra hennar Petrúnella Skúladóttir gengið til liðs við Njarðvík.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×