Sport

Ágúst þjálfar U-18

Ágúst Sigurður Björgvinsson hefur verið ráðinn þjálfari U-18 ára landsliðs kvenna í körfubolta en Ágúst þjálfar einnig hið unga og efnilega kvennalið Hauka. Meðal verkefna hjá landsliðinu næsta sumar eru Norðurlandamót og Evrópukeppni.Liðið hefur undirbúning fyrir sumarið nú um jólin og hefur Ágúst valið stóran hóp til æfinga. Flestir leikmenn koma úr Haukum (10) og Keflavík (7) en Tindastóll (2) og Njarðvík (2) eiga einnig leikmenn í þessum stóra æfingahópi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×