Jól

Látum ljós okkar skína

Látum ljós okkar skína" er áskorun sem hefur verið send á Laugarvatni og í nágrenni í tilefni þess að aðventuskemmtun verður á Laugarvatni á morgun. Hún hefst við grunnskólann kl. 13.30 þar sem Söngkór Miðdalskirkju syngur jólalög og jólamarkaður verður opnaður. Við Héraðsskólann verður kveikt á ljósum Lionjólatrésins í Bjarnarlundi og jólaljósum skólans og að því búnu verður kertafleyting á vatninu. Jólastemning verður í gufubaðinu og að lokum jólahlaðborð í Lindinni.


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×