Jól

Ljósakvöld í Blómavali

Annað kvöld býður Blómaval við Sigtún upp á ljósakvöld með notalegri jólastemningu þar sem ljósin í verslunni verða dempuð og jólaljós og kerti tendruð og hefst kvöldið klukkan 21 og stendur til 23. Í versluninni verður 20% afsláttur af öllum vörum milli klukkan 21.30 til 23. Boðið verður upp á heitt súkkulaði og piparkökur í bland við jólatónlist. Viðskiptavinum gefst kostur á að hitta skreytingarfólk og drekka í sig rómantíska jólastemningu. Að lokum verða allir leystir út með gjöf frá Blómavali.


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×