Erlent

Halda meirihluta á þingi

Repúblikanar héldu meirihluta sínum í fulltrúadeild Bandaríkjaþings fimmtu kosningarnar í röð og juku reyndar við meirihlutann því þeir unnu fjögur sæti í Texas á kostnað demókrata. Þetta er í fyrsta sinn í meira en 70 ár sem repúblikanar eru í meirihluta í fulltrúadeildinni tólf ár í röð. Það er ekki aðeins í fulltrúadeildinni sem repúblikanar halda meirihluta sínum. Þeir héldu einnig  meirihluta sínum í öldungadeild þingsins og geta fullkomnað þrennuna ef George W. Bush nær endurkjöri.


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×