Innlent

„Kostar líka sitt að hafa einræði“

Sigrún Þorsteinsdóttir, sem bauð sig fram gegn Vigdísi Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta Íslands, segist skilja gremju Ástþórs Magnússonar yfir því að hafa ekki fengið Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, í kappræður í sjónvarpi eða útvarpi. Henni, og stuðningsmönnum hennar, hafi ekki tekist að fá Vígdísi Finnbogadóttur í sameiginlega umræðuþætti alla kosningabaráttuna 1988. „Það var eftir Vigdísi haft: „Þjóðin þekkir mig“,“ sagði Sigrún í samtali við fréttamann fyrr í dag.   Þess ber að geta að Ólafur Ragnar Grímsson hefur fallist á að koma í umræðuþætti með mótframbjóðendum sínum, þeim Ástþóri Magnússyni og Baldri Ágústssyni, síðar í þessari viku, til að mynda í Íslandi í dag á Stöð 2 á föstudag - daginn fyrir forsetakosningarnar. Ástþór og Baldur eru andvígir ákvörðun forsetans að synja fjölmiðlalögunum staðfestingar en Sigrún Þorsteinsdóttir er ánægð með að hann skyldi neita að skrifa undir lögin. „Tilgangurinn með mínu framboði var að ítreka þennan málskotsrétt sem forseti hefur og þess vegna er ég mjög ánægð yfir því að þjóðin fái nú að segja sitt álit um þetta mál. Í mínum huga skiptir ekki öllu máli hvert málið er, heldur að þetta er skref í þá átt að gera lýðræðið virkara. Það þarf að þróa lýðræði því það er ekki eitthvað sem kemur bara tilbúið,“ segir Sigrún.  Hún segir jafnframt að það sé mikilvægt lýðræðinu að kosið sé um forseta. Það gildi einu þótt skoðanakannanir sýni að frambjóðandi eigi litla sem enga möguleika. „Það er út í hött að tala um einhverjar peningaupphæðir í tengslum við forsetakosningar og þjóðaratkvæðagreiðslu. Þetta fylgir lýðræðinu og ekki viljum við einræði. Það kostar líka sitt að að hafa einræði,“ segir Sigrún Þorsteinsdóttir, forsetaframbjóðandi 1988. Sigrún fékk 7000 atkvæði, Vigdís Finnbogadóttir 117.000.


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×