Bílar

Fyrstu Fast & Furious bílarnir komnir í Mývatnssveit

Finnur Thorlacius skrifar
Lamborghini Murchielago og herbíll.
Lamborghini Murchielago og herbíll. Mynd/Pétur Elvar Sigurðsson
Undirbúningur fyrir tökur á myndinni Fast & Furious 8, sem teknar verða að hluta á Íslandi, eru greinilega í fullum gangi og fyrstu bílarnir eru farnir að sjást á vinnustað. Þar er um að ræða bíla sem verða örugglega í mynd, sem og vinnubílar. Bílunum var ekið norður í land í gær og náðust þessar myndir af bílunum í Varmahlíð.

Á meðfylgjandi myndum má sjá að meðal þeirra er Lamborghini Murchielago bíll og einhverjir mjög breyttir og sérsmíðaðir bílar eins og gjarnan sjást í myndaröðinni. Þarna má einnig sjá fjölmarga snjósleða og ekki kæmi á óvart að myndað væri af þeim á fullri ferð á eftir hraðskreiðum bílum. Auk þess voru tveir stórir flutningabílar á ferðinni.

Tveir Subaru Impreza WRX bílar eru á einum bílaflutningabílunum og líklega er breytti svarti kagginn ofan á í grunninn Dodge Charger og svo er þarna einnig magnaður Rally Fighter frá framleiðandanum Local Motors. 

Pétur Elvar Sigurðsson var á leiðinni suður til Reykjavíkur að norðan í gær og náði þessum glæsilegum myndum af bílunum. Hann gaf Vísi góðfúslegt leyfi til að birta þær.

Tveir Subaru WRX, Rally fighter, Caddy, RAM og líklega breyttur Dodge Charger.Mynd/Pétur Elvar Sigurðsson
Fullt af vélsleðum.Mynd/Pétur Elvar Sigurðsson

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×